FYRSTA MÁL DAGSINS
GRÍSK DRYKKJARJÓGÚRT
Grísk drykkjarjógúrt sameinar silkimjúka áferð og hreint, frísklegt bragð í þægilegu formi sem hentar hröðum lífsstíl. Hún er náttúrulega rík af kalki og B12-vítamíni og bætt með D-vítamíni sem stuðlar að eðlilegri beinheilsu, vöðvastarfsemi og starfsemi ónæmiskerfisins. Létt að grípa með sér í morgunmat, sem millimál eða eftir æfingu – næringarrík og bragðgóð lausn fyrir alla fjölskylduna, alla daga
KEFÍR
Íslenskur Kefír sameinar aldagamla gerjunarhefð úr Kákasusfjöllunum og nútímalega vöruþróun. Hann er náttúrulega ríkur af lifandi góðgerlum sem styðja við meltingu og jafnvægi í þarmaflóru, auk próteins og mikilvægra næringarefna. Léttur, bragðgóður og hannaður fyrir alla sem vilja einfaldan og næringarríkan kost – hvort sem er á ferðinni eða við morgunverðarborðið.
Nú fæst hann einnig próteinbættur í fjölbreyttum og spennandi bragðtegundum – og með kollageni eða kreatíni fyrir þá sem vilja enn meira út úr deginum.
HAFÐU SAMBAND
Starfsfólk Mjólku leitast
við að svara erindinu eins
fljótt og auðið er.
Afgreiðsla skrifstofu:
08:00 – 16:00 Mán – Fim
08:00 – 15:00 Fös
STÓRELDHÚS
Mjólka er með mikið úrval vara fyrir stórnotendur. Við framleiðum vörur
undir okkar merkjum ásamt því að sérframleiða vörur fyrir okkar viðskiptavini.
Hafðu samband og við svörum eins fljótt og auðið er!
Sjá má almennan vörulista fyrir stórnotendur hér fyrir neðan.